Heiða, Bryndís og Elisabeth kynntust á dans- og æfingagólfinu í Zumba og Strong. Eftir að hafa kennt saman í nokkur ár ákváðu þær að halda samstarfinu áfram á nýjum vettvangi og stofna félagið Power Move Studio. Power Move Studio tók til starfa í ágúst 2024 og býður m.a. upp á Zumba og Strong Nation tíma en einnig er á dagskrá að halda viðburði á vegum félagsins og annað því tengdu.
Power Move Studio býður meðal annars upp á Zumba og Strong Nation tíma en einnig er á dagskrá að halda viðburði á vegum félagsins og annað því tengdu. Áherslur Power Move Studio eru gleði, kraftur, hreyfing og vellíðan.
Merki Power Move Studio
Upphafspunktur hönnunarinnar er kraftur og gleði. Merkið brosir og stekkur upp á við í átt að árangri. Munstrið byggir á nafninu, upphafsstafi “MOVE” í munstrinu og orkuna úr “POWER”. Aðalformið er hringlaga og í því má m.a. sjá framhlið hátalara sem gægist undan nafninu og tengir þannig í tónlistina og taktinn sem fylgir starfseminni. Merkið er í grunninn svart hvítt, og getur þannig borið hvaða liti sem er.
Hönnun Power Move Studio er í höndum Karls Vinther og er vefsíðan forrituð af Jóhanni Guðmundssyni.
power move studio ehf.
kt. 670824-3570
