zumba
Komdu í partý og gleymdu þér í gleðinni!
Zumba er fyrst og fremst partý en einnig frábær líkamsrækt sem hefur bæði jákvæð áhrif á líkamlega og andlega heilsu. Zumba eykur brennslu og þol, styrkir hjarta- og æðakerfið og bætir jafnframt liðleika, jafnvægi og samhæfingu. Í hreyfingu eins og Zumba framleiðir líkaminn einnig vellíðunarhormón sem getur dregið úr kvíða, streitu og jafnvel þunglyndi. Zumba hefur því góð áhrif bæði á líkama og sál!
Zumba er blanda af þolþjálfun og dansi. Helstu dansstílarnir eru merengue, salsa, cumbia og reggaeton. Það þarf enga danskunnáttu til að mæta í Zumba. Sporin eru einföld en þó fjölbreytt og eru þau alla jafna endurtekin í mismunandi útfærslum. Þú ættir að komast fljótt upp á lagið eftir nokkur skipti.
Zumba er líkamsrækt sem hentar öllum því hver og einn getur stýrt ákefð æfingarinnar eftir sinni getu og getur tekið pásu eftir þörfum.
Æskilegt er að vera léttum og þægilegum klæðnaði, í sléttum íþróttaskóm með góðum stuðningi við ökkla og taka meðferðis vatnsbrúsa.
Hjá okkur á öllum að geta liðið vel, dansað áhyggjulausir og gengið glaðir út. Við hvetjum þig til að koma og vera með!
